Fréttir
20. nóvember 2008
Úttekt Deloitte FAS ehf. á eignum Lífeyrissjóðs bankamanna
Samkvæmt mati Deloitte FAS ehf, sem unnið var fyrir Lífeyrissjóð bankamanna á stöðu eigna sjóðsins eftir hrun fjármálamarkaða, hafa eignir Hlutfallsdeildar lækkað um 6.5% en eignir Aldursdeildar um 11.6%.
Þá hefur tryggingastærðfræðingur sjóðsins framreiknað tryggingafræðilega úttekt á skuldbindingum sjóðsins með ákveðnum fyrirvörum varðandi endurmat eigna. Samkvæmt niðurstöðu hans er mismunur eigna og skuldbindinga -3.7% hjá Hlutfallsdeild en -2.0% hjá Aldursdeild. Á þessu stigi málsins er því ólíklegt að til skerðingar réttinda þurfi að koma á næstunni. Þó skal undirstrikað að um bráðabirgðamat er að ræða.
Hlutverk sjóðsins.
Lífeyrissjóður bankamanna hefur það hlutverk að sjá sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum fyrir lífeyri samkvæmt ákvæðum samþykkta sjóðsins. Lífeyrissjóðurinn er sjálfstæð stofnun með eigin stjórn og undir opinberu eftirliti, eins og aðrir lífeyrissjóðir landsins. Deildir sjóðsins eru tvær, Hlutfallsdeild og Aldursdeild. Allir starfsmenn aðildarfyrirtækja sjóðsins, sem náð hafa 16 ára aldri, skulu vera sjóðfélagar og greiða iðgjöld til sjóðsins meðan þeir starfa hjá viðkomandi fyrirtæki.
Opnunartími
Opnunartími 9:15 - 16
Lífeyrissjóður bankamanna
Skipholti 50b
105 Reykjavík
Skoða á korti >>









