Fréttir
6. apríl 2011
Ársfundur 2011
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Hótel Loftleiðum 5. apríl síðast liðinn. Fundarstjóri var kjörinn Hinrik Greipsson og ritari fundarins Jón Þór Grímsson.
Fundargerð ársfundar 2011.
Friðbert Traustason, formaður stjórnar, reifaði helstu þætti í starfsemi sjóðsins á síðasta ári.
Sigtryggur Jónsson, framkvæmdastjóri sjóðsins, skýrði ársreikning sjóðsins.
Bjarni Guðmundsson, tryggingastærðfræðingur sjóðsins, útskýrði úttekt á skuldbindingum sjóðsins.
Hlutfallsdeild. Sjá hér.
Aldursdeild. Sjá hér.
Samþykktar voru tillögur stjórnar til breytinga á samþykktum sjóðsins.
Hlutverk sjóðsins.
Lífeyrissjóður bankamanna hefur það hlutverk að sjá sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum fyrir lífeyri samkvæmt ákvæðum samþykkta sjóðsins. Lífeyrissjóðurinn er sjálfstæð stofnun með eigin stjórn og undir opinberu eftirliti, eins og aðrir lífeyrissjóðir landsins. Deildir sjóðsins eru tvær, Hlutfallsdeild og Aldursdeild. Allir starfsmenn aðildarfyrirtækja sjóðsins, sem náð hafa 16 ára aldri, skulu vera sjóðfélagar og greiða iðgjöld til sjóðsins meðan þeir starfa hjá viðkomandi fyrirtæki.
Opnunartími
Opnunartími 9:15 - 16
Lífeyrissjóður bankamanna
Skipholti 50b
105 Reykjavík
Skoða á korti >>









