Fréttir
22. desember 2011
Nýjar samþykktir Lífeyrissjóðs bankamanna
Á ársfundi Lífeyrssjóðs bankamanna 5. apríl 2011 voru samþykktar tillögur stjórnar sjóðsins til breytinga á samþykktum hans. Samþykktirnar með áorðnum breytingum hafa nú 15. desember 2011 verið staðfestar af meirihluta aðildarfyrirtækja sjóðsins og í framhaldi af því af fjármálaráðuneytinu.
Hlutverk sjóðsins.
Lífeyrissjóður bankamanna hefur það hlutverk að sjá sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum fyrir lífeyri samkvæmt ákvæðum samþykkta sjóðsins. Lífeyrissjóðurinn er sjálfstæð stofnun með eigin stjórn og undir opinberu eftirliti, eins og aðrir lífeyrissjóðir landsins. Deildir sjóðsins eru tvær, Hlutfallsdeild og Aldursdeild. Allir starfsmenn aðildarfyrirtækja sjóðsins, sem náð hafa 16 ára aldri, skulu vera sjóðfélagar og greiða iðgjöld til sjóðsins meðan þeir starfa hjá viðkomandi fyrirtæki.
Opnunartími
Opnunartími 9:15 - 16
Lífeyrissjóður bankamanna
Skipholti 50b
105 Reykjavík
Skoða á korti >>









