15.04.2020

Ársfundi frestað um óakveðinn tíma

Ákveðið hefur verið að fresta ársfundi Lífeyrissjóðs bankamanna sem halda átti miðvikudaginn 29. apríl næstkomandi. Þetta er gert í ljósi gildandi samkomubanns stjórnvalda vegna COVID-19. Stjórn sjóðsins mun taka ákvörðun um  nýjan fundartíma þegar aðstæður leyfa og verður  það auglýst sérstaklega.

Tveggja vikna framboðsfrestur til stjórnar framlengist til samræmis við nýjan fundartíma.

Eru sjóðfélagar hvattir til að fylgjast með heimasíðu sjóðsins.

Til baka í fréttir