Ársfundur 2016
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn miðvikudaginn 6. apríl næstkomandi kl. 17.00. Fundurinn verður haldinn á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, Þingsal 2-3.
Dagskrá:
- Venjuleg störf ársfundar skv. 6. gr. samþykkta sjóðsins
- Málefni Hlutfallsdeildar
- Önnur mál
Vakin er athygli á að á fundinum fer fram kosning þriggja stjórnarmanna af sex og skulu tilkynningar um framboð vegna stjórnarkjörs, ásamt upplýsingum um starfsferil, berast skriflega til skrifstofu sjóðsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir ársfund skv. 2. grein samþykkta sjóðsins.
Skulu stjórnarmenn lífeyrissjóða uppfylla 31. gr. laga nr. 129/1997 um starfsemi lífeyrissjóða. Þá þurfa stjórnarmenn að búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu sbr. 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og vera fjárhagslega sjálfstæðir sbr. 9. gr. reglna FME nr. 180/2013. Auk þess þurfa þeir að gangast undir munnlegt hæfismat hjá FME sbr. 16. gr. reglna FME nr. 180/2013.