12.05.2020

Ársfundur 2020 - breyttur fundartími og fundarstaður

Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn miðvikudaginn 10. júní kl. 17:00 á Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn var áður auglýstur 29. apríl en var frestað vegna vegna Covid-19 samkomubanns.  Vakin er sérstök athygli á breyttum fundarstað frá fyrri auglýsingu.

Dagskrá:
1. Venjuleg störf ársfundar skv. 6. gr. samþykkta sjóðsins
2. Önnur mál

Á fundinum fer fram kosning þriggja stjórnarmanna af sex og skulu tilkynningar um framboð vegna stjórnarkjörs, ásamt upplýsingum um starfsferil, berast skriflega til skrifstofu sjóðsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir ársfund skv. 2. grein samþykkta sjóðsins. 

Skulu stjórnarmenn lífeyrissjóða uppfylla 31. gr. laga nr. 129/1997 um starfsemi lífeyrissjóða. Þá þurfa stjórnarmenn að búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu sbr. 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og vera fjárhagslega sjálfstæðir sbr. 9. gr. reglna FME nr. 180/2013. Auk þess þurfa þeir að gangast undir munnlegt hæfismat hjá FME sbr. 16. gr. reglna FME nr. 180/2013.

Til baka í fréttir