Ársuppgjör 2016
Ársuppgjör Lífeyrissjóðs bankamanna fyrir árið 2016 liggur nú fyrir og er ávöxtun deilda ólík og endurspeglar ólíka fjárfestingarstefnu þeirra. Hrein nafnávöxtun Hlutfallsdeildar nam 5,3% á árinu 2016 sem samsvarar 3,3% hreinni raunávöxtun samanborið við 4,5% á árinu 2015. Í Aldursdeild nam hrein nafnávöxtun 1,9% sem samsvarar -0,12% hreinni raunávöxtun samanborið við 7,8% á árinu 2015. Í samanburði milli ára munar mestu um styrkingu íslensku krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum um 15% sem olli því að ávöxtun erlendra eigna var verulega neikvæð í krónum mælt. Þá varð mikill viðsnúningur í þróun hlutabréfaverðs en Úrvalsvísitala hlutabréfa lækkaði um 9% á árinu samanborið við 43% hækkun árið 2015. Meðalraunávöxtun síðustu 5 ára er 4,4% hjá Hlutfallsdeild en 4,7% í Aldursdeild. Rekstrarkostnaður sjóðsins, þ.e. skrifstofu- og stjórnunarkostnaður að teknu tilliti til kostnaðarþátttöku aðildarfélaga, nam 97 milljónum króna samanborið við 110,4 milljónir árið áður. Munar þar mestu um kostnað vegna starfsloka framkvæmdastjóra á árinu 2015. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af meðalstöðu eigna var því 0,14%. Í árslok greiddu 2.025 sjóðfélagar iðgjöld til sjóðsins, þar af 164 í Hlutfallsdeild og 1.861 í Aldursdeild. Í árslok 2015 greiddu 202 sjóðfélagi iðgjöld í Hlutfallsdeild og 1.909 í Aldursdeild eða alls 2.111. Heildariðgjöld til Hlutfallsdeildar námu 201 milljón á árinu 2016 samanborið við 209 milljónir árið áður. Í Aldursdeild námu heildariðgjöld 1.862 milljónum samanborið við 1.764 milljónir árið áður. Heildareignir Lífeyrissjóða bankamanna námu kr. 71.259 milljónum í lok árs 2016 sem skiptast þannig að í Hlutfallsdeild voru eignir alls kr. 38.470 milljónir eða 54% og í Aldursdeild kr. 32.789 milljónir eða 46%. Fyrir liggur tryggingafræðileg úttekt miðað við 31. desember 2016 sem sýnir að heildarskuldbindingar Hlutfallsdeildar námu 4,02% umfram heildareignir samanborið við 2,63% árið áður. Hjá Aldursdeild eru heildarskuldbindingar 3,62% umfram heildareignir samanborið við 0,47% árið áður. Auk áhrifa lægri raunávöxtunar milli ára skýrist lakari tryggingafræðileg staða af breyttum forsendum um dánar- og lífslíkur sem nú byggja á nýjum dánar- og eftirlifendatöflum útgefnum af Félagi íslenskra tryggingastærfræðinga. Samandregnar upplýsingar um starfsemi sjóðsins má sjá hér.
Ársreikning sjóðsins í heild má sé hér.