17.03.2016

Ávöxtun og afkoma 2015

Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2015. Hrein eign til greiðslu lífeyris nam um síðustu áramót 37,1 milljarði króna hjá Hlutfallsdeild en 30,5 milljörðum króna hjá Aldursdeild.

Hrein raunávöxtun Hlutfallsdeildar var 4,84% samanborið við 4,42% árið áður. Hrein raunávöxtun Aldursdeildar var 7,86% samanborið við 5,06% árið áður. Frá upptöku deildarskiptingar lífeyrissjóðsins árið 1998 hefur hrein raunávöxtun að meðaltali verið 3,83% hjá Hlutfallsdeild og 4,06% hjá Aldursdeild og endurspeglar munurinn ólíka fjárfestingarstefnu deildanna í ljósi ólíkrar aldurssamsetningar þeirra.

Á árinu greiddi Hlutfallsdeild 2.190,4 milljónir króna í lífeyri til 946 lífeyrisþega en Aldursdeild greiddi 256,6 milljónir til 253 lífeyrisþega.

Samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt námu heildarskuldbindingar Hlutfallsdeildar 1.071 milljónum umfram eignir í árslok eða sem nemur -2,6% af heildarskuldbindingum samanborið við -2,7% árið áður. Hjá Aldursdeild námu heildarskuldbindingar 259 milljónum umfram eignir eða -0,46% af heildarskuldbindingum samanborið við -2,6%  árið áður.

Hér má sjá meginniðurstöður ársreiknings fyrir árið 2015. Ársreikninginn í heild sinni má finna hér.

Til baka í fréttir