23.10.2013

Framkvæmdastjóraskipti

Framkvæmdastjóri sjóðsins, Sigtryggur Jónsson, mun láta af störfum í lok árs að eigin ósk eftir 29 ára starf fyrir sjóðinn.  Nýr framkvæmdastjóri hefur verið skipaður, Ólafur Kr. Valdimarsson og mun hann taka við störfum framkvæmdastjóra í upphafi nýs árs.  Ólafur hefur starfað sem sérfræðingur hjá sjóðnum frá árinu 2011 og er með próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í fjárfestingarstjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.

Til baka í fréttir