28.01.2017

Íslenska ríkið kærir úrskurð til Hæstaréttar

Þann 25. janúar s.l. barst Hæstarrétti kæra frá ríkislögmanni þar sem úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá 12. janúar er skotið til Hæstaréttar, en í þeim úrskurði féllst Héraðsdómur á beiðni Lífeyrissjóðs bankamanna um dómkvaðningu matsmanns. Krefst íslenska ríkið þess nú að úrskurður Héraðsdóms verði felldur úr gildi og beiðni um dómkvaðningu matsmanns verði hafnað. Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna ítrekar vonbrigði sín með að íslenska ríkið vilji koma í veg fyrir að fengið verði óháð mat á umfangi þess tjóns sem sjóðfélagar Hlutfallsdeildar telja sig hafa orðið fyrir. Má gera ráð fyrir að niðurstaða Hæstaréttar liggi fyrir innan nokkurrra vikna.

Til baka í fréttir