12.01.2017
Matsbeiðni samþykkt
Í dag kvað Héraðsdómur Reykjavíkur upp úrskurð þar sem fallist er á beiðni Lífeyrissjóðs bankamanna um að dómkvaddur verði matsmaður til þess að meta tiltekin atriði í tengslum við uppgjör á ábyrgð aðildarfélaga á skuldbindingum Hlutfallsdeildar frá 1998. Var beiðnin lögð var fram til að staðreyna fjárhagslegt umfang á því tjóni sem sjóðfélagar Hlutfallsdeildar telja sig hafa orðið fyrir vegna brostinna forsendna þess samkomulags sem gert var um uppgjörið. Þá voru tveir málsaðilar, íslenska ríkið og Landsvaki, dæmdir til greiðslu málskostnaðar en þeir höfðu krafist þess að matsbeiðninni yrði hafnað.