23.02.2017

Matsbeiðni staðfest af Hæstarétti

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá  12. janúar þar fallist var á beiðni Lífeyrissjóðs bankamanna um dómkvaðningu matsmanns. Íslenska ríkið hafði kært þann úrskurð og krafist þess að matsbeiðninni yrði hafnað en ekki var fallist á þá kröfu. Jafnframt var íslenska ríkið dæmt til greiðslu málskostnaðar. Þar með er ljóst að dómkvaddur verður matsmaður til þess að meta tiltekin atriði í tengslum við uppgjör á ábyrgð aðildarfélaga á skuldbindingum Hlutfallsdeildar frá 1998.

Til baka í fréttir