Niðurstöður ársfundar 2017
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Icelandair Hotel Reykjavik Natura þann 26. apríl síðastliðinn og hófst kl. 17. Fundarstjóri var kjörin Hinrik Greipsson og ritari fundarins var Pálmi Rögnvaldsson. Fundargerð ársfundar verður aðgengileg hér innan skamms.
Í forföllum stjórnarformanns Friðberts Traustasonar flutti Tryggvi Tryggvason framkvæmdastjóri skýrslu stjórnar og fór yfir helstu þætti í starfsemi sjóðsins á síðasta ári. Í framhaldinu kynnti Tryggvi ársreikning 2016 og fjárfestingarstefnur beggja deilda og má sjá þær glærur hér.
Tryggingafræðingur sjóðsins, Bjarni Guðmundsson, fór því næst yfir tryggingafræðilega stöðu beggja deilda og verður kynning Bjarna aðgengileg hér innan skamms.
Skoðunarmenn sjóðsins voru endurkjörin þau Guðrún Antonsdóttir og Jón Ívarsson.
Þá var samþykkt tillaga að breytingu á 2. gr. samþykkta sjóðsins sem verður í framhaldinu send aðildarfyrirtækjum til meðferðar í samræmi við 7. gr. samþykkta.
Undir liðnum önnur mál fór Tryggvi stuttlega yfir framvindu mála hjá Hlutfallsdeild.