01.10.2024
Nýtt yfirlit sjóðfélaga aðgengilegt á sjóðfélagavef
Nýtt yfirlit yfir iðgjaldagreiðslur og stöðu áunninna réttinda m.v. 30. september 2024 er nú aðgengilegt undir flipanum "skjöl" á sjóðsfélagavef. Prentuð yfirlit heyra nú sögunni til og yfirlit sjóðsins eru eingöngu rafræn.
Eru sjóðfélagar hvattir til að bera saman upphæðir launaseðla og upphæðir á yfirlitum og láta vita á netfanginu lifbank@lifbank.is ef greiðslur vantar.
Jafnframt er þar að finna upplýsingablað vegna nýlegra réttindabreytinga í Aldursdeild í tengslum við staðfestingu á nýjum samþykktum.