Réttindabreyting í Hlutfallsdeild
Á ársfundi Lífeyrissjóðs bankamanna sem var haldinn 26. mars 2014 kom fram að tryggingafræðileg staða Hlutfallsdeildar var neikvæð um 9,72% í árslok 2013. Á fundinum voru greidd atkvæði um tillögu að réttindabreytingu og var samþykkt að leiðrétta tryggingafræðilega stöðu deildarinnar í einu skrefi.
Fjármálaráðuneytið hefur nú með bréfi til Lífeyrissjóðs bankamanna, dags. 28. nóvember 2014, staðfest breytingar á samþykktum sjóðsins. Réttindabreyting Hlutfallsdeildar kemur nú til framkvæmda og verður árleg réttindaávinnsla í fullu starfi eða hlutfall eftirlauna því 1,92% í stað 2,125% áður. Breytingin hefur áhrif á lífeyrisgreiðslur deildarinnar frá og með janúar 2015.
Bréf hafa verið send til sjóðfélaga með nánari skýringum.
Jafnframt má sjá bréfin hér:
Bréf til sjóðfélaga sem taka lífeyri frá Hlutfallsdeild.
Bréf til sjóðfélaga sem greiða iðgjöld til Hlutfallsdeildar og/eða eiga geymd réttindi.