Réttindabreyting í Hlutfallsdeild frá 1. desember 2019
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur með bréfi dags. 24. október staðfest þær samþykktarbreytingar sem samþykktar voru á ársfundi Lífeyrissjóðs bankamanna 30. apríl 2019. Breytingarnar fela í sér lækkun á árlegum réttindastuðli Hlutfallsdeildar úr 1,92% í 1,82% sem samsvarar um 5,2% lækkun á lífeyri. Jafnframt var samþykkt að fella út ákvæði um dánarbætur í báðum deildum. Kemur réttindabreytingin nú til framkvæmda og hefur áhrif á lífeyrisgreiðslur frá og með 1. desember 2019.
Réttindareytingin er í samræmi við það sem kynnt var á sérstökum sjóðfélagafundi Hlutfallsdeildar 28. nóvember 2018 og miðar að því að jafna þann mun sem myndast hefur milli skuldbindinga og eigna deildarinnar. Viðvarandi halli hefur verið á Hlutfallsdeild undanfarin ár, þrátt fyrir að raunávöxtun eigna hafi verið umfram 3,5% viðmið, og skýrist einkum af því að forsendur á skuldbindingahlið hafa ekki staðist. Skapist aðstæður til hækkunar réttinda á ný mun slíkt verða gert en eins og kunnugt er rekur sjóðurinn mál fyrir dómstólum vegna Hlutfallsdeildar.