24.02.2014
Tillögur til breytinga á samþykktum 2014
Fyrirliggjandi eru tillögur stjórnar Lífeyrissjóðs bankamanna til breytinga á samþykktum sjóðsins, sem lagðar verða fram á ársfundi sjóðsins þann 26. mars 2014.
Tillögunum er ætlað að leiðrétta tryggingafræðilega stöðu Hlutfallsdeildar, en mismunur eigna og skuldbindinga deildarinnar var -7,9% miðað við árslok 2012. Nú er unnið að tryggingafræðilegri úttekt miðað við árslok 2013 og mun hún liggja fyrir á ársfundi eða fyrr.
Einnig er lögð fram tillaga hjá bæði Hlutfallsdeild og Aldursdeild um að heimilt verði, að undangengnu áliti trúnaðarlæknis lífeyrissjóðs, að setja það skilyrði fyrir greiðslu örorkulífeyris að sjóðfélagi fari í endurhæfingu sem bætt geti heilsufar hans.