23.05.2018

Tryggingafræðilegar úttektir deilda - leiðrétt staða Hlutfallsdeildar

Fyrir liggja tryggingafræðilegar úttekir beggja deilda m.v. árslok 2017. Við lokafrágang á skýrslum um tryggingafræðilega úttekt kom í ljós að mistök höfðu átt sér stað við fyrri útreikning tryggingafræðings sem leiddu til skekkju í tryggingafræðilegu endurmati skuldabréfaeignar Hlutfallsdeildar. Þannig var endurmat eigna Hlutfallsdeildar ofmetið  sem leiðir til þess að tryggingafræðileg staða deildarinnar er  lakari en greint er frá í ársreikningi sjóðsins sem byggður var á fyrri niðurstöðum tryggingafræðings. Við leiðréttingu lækkar mat á tryggingafræðilegri stöðu Hlutfallsdeildar úr -5,25%  í -6,19%. Engar lífeyrisgreiðslur eða réttindi munu raskast af þessum sökum. Nánar er fjallað um tryggingafræðilega stöðu sjóðsins í meðfylgjandi skýrslum fyrir Aldursdeild og Hlutfallsdeild.

Til baka í fréttir