21.05.2019
Úrskurður Héraðsdóms kærður til Landsréttar
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna hefur ákveðið að kæra til Landsréttar úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 24. apríl um frávísun á 3 af 4 kröfuliðum í máli Lífeyrissjóðs bankamanna gegn aðildarfyrirtækjum og íslenska ríkinu vegna Hlutfallsdeildar. Vænta má niðurstöðu í kærumálinu fyrri hluta júní mánaðar.