27.05.2026

Niðurstaða ársfundar 2026

Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Hótel Reykjavík Grand þann 27. maí síðastliðinn  og hófst hann kl. 17:00. Fundarstjóri var kjörinn Hinrik Greipsson og ritari fundarins var Pálmi Rögnvaldsson.

Tilkynnt var um niðurstöðu rafrænna kosninga til stjórnar sem fram fór 20. maí - 26. maí 2024 þar sem eftirtaldir einstaklingur hlutu kjör til aðalstjórnar:

Steinunn Anna Hannesdóttir
Jón Fannar Guðmundsson
Ari Skúlason

Þá voru eftirtaldir einstaklingar kjörnir í varastjórn:

Sindri Reynisson  - 1. varamaður
Ólafur Örn Ingólfsson - 2. varamaður
Helga Jónsdóttir - 3. varamaður

Sigurður Kári Tryggvason, formaður stjórnar, flutti skýrslu stjórnar og fór yfir helstu þætti í starfsemi sjóðsins á síðasta ári.  Þá kynnti Tryggvi Tryggvason, framkvæmdastjóri sjóðsins, ársreikning 2025 og fjárfestingarstefnur beggja deilda. Jafnframt fór tryggingafræðingur sjóðsins, Bjarni Guðmundsson, yfir tryggingafræðilega stöðu beggja deilda lífeyrissjóðsins.

Skoðunarmenn sjóðsins voru kjörin þau Helga Jónsdóttir og Sigurjón Gunnarsson.

Hér má skoða þær glærur sem farið var yfir á fundinum en hann var jafnframt sendur út í beinu vefstreymi.

Fundargerð fundarins verður aðgengileg á vefsíðunni innan skamms.

Til baka í fréttir