Ársuppgjör Lífeyrissjóðs bankamanna 2025
Samkvæmt ársreikningi nam hrein eign Lífeyrissjóðs bankamanna 123,5,9 milljörðum króna í lok árs 2025 og hækkaði um 4,6 milljarða króna milli ára.
Hrein nafnávöxtun Hlutfallsdeildar var 7,7% á árinu 2025 sem samsvarar 3,9% raunávöxtun samanborið við 4,7% raunávöxtun á árinu 2024. Hjá Aldurssdeild var hrein nafnávöxtun 5,4% á árinu 2024 sem samsvarar 1,6% raunávöxtun samanborið við 5,7% raunávöxtun á árinu 2024.
Meðaltal hreinnar raunávöxtunar hjá Hlutfallsdeild er 2,4% síðustu 5 ár, 3,1% síðustu 10 ár og 3,4% síðustu 20 ár. Hjá Aldursdeild er meðal hrein raunávöxtun 2,0% síðustu 5 ár, 3,1% síðustu 10 ár og 3,2% síðustu 20 ár.
Rekstrarkostnaður sem hlutfall af meðalstöðu eigna hækkar úr 0,13% í 0,16%.
Tryggingafræðileg staða Hlutfallsdeildar er neikvæð og námu heildarskuldbindingar 3,1% umfram heildareignir í lok árs 2025 samanborið við 2,4% árið áður. Skýrist lakari tryggingafræðileg staða af breytingu á samsetningu skuldabréfasafns vegna uppgjörs ÍL sjóðs og er gert er ráð fyrir að þau áhrif gangi að mestu til baka þegar yfirstandandi breytingum á skuldabréfasafni deildarinnar er lokið. Hjá Aldursdeild er námu heildarskuldbindingar 0,7% umfram heildareignir í lok árs 2025 samanborið við 0,5% jákvæða stöðu árið áður.
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn miðvikudaginn 27. maí næstkomandi kl. 17:00 á Hótel Reykjavík Grand, Sigtúni 28.