06.03.2018

Ársfundur 2018 og stjórnarkjör

Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn miðvikudaginn 25. apríl næstkomandi kl. 17.15. Fundurinn verður haldinn á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, Þingsal 2-3.

Dagskrá:
1. Venjuleg störf ársfundar skv. 6. gr. samþykkta sjóðsins
2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins
3. Önnur mál

Tillögur til breytinga á samþykktum Lífeyrissjóðs bankamanna liggja frammi á skrifstofu sjóðsins að Skipholti 50b. Einnig er hægt að nálgast tillögurnar hér á vef sjóðsins.

Vakin er athygli á að á fundinum fer fram kosning þriggja stjórnarmanna af sex og skulu tilkynningar um framboð vegna stjórnarkjörs, ásamt upplýsingum um starfsferil, berast skriflega til skrifstofu sjóðsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir ársfund skv. 2. grein samþykkta sjóðsins. 

Skulu stjórnarmenn lífeyrissjóða uppfylla 31. gr. laga nr. 129/1997 um starfsemi lífeyrissjóða. Þá þurfa stjórnarmenn að búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu sbr. 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og vera fjárhagslega sjálfstæðir sbr. 9. gr. reglna FME nr. 180/2013. Auk þess þurfa þeir að gangast undir munnlegt hæfismat hjá FME sbr. 16. gr. reglna FME nr. 180/2013.

Til baka í fréttir