02.05.2019

Niðurstöður ársfundar 2019

Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Icelandair Hotel Reykjavík Natura þriðjudaginn 30. apríl s.l. og hófst hann kl. 17:15. Fundarstjóri var kjörinn Hinrik Greipsson og ritari fundarins Pálmi Rögnvaldsson. Fundargerð ársfundarins verður hægt að nálgast á vef sjóðsins.

Ari Skúlason, formaður stjórnar, flutti skýrslu stjórnar og fór m.a. yfir áskoranir í umhverfi lífeyrissjóða og samanburð við lífeyriskerfi annarra þjóða.  Þá kynnti Tryggvi Tryggvason, framkvæmdastjóri sjóðsins, ársreikning 2018 og fjárfestingarstefnur beggja deilda. Loks fór tryggingafræðingur sjóðsins, Bjarni Guðmundsson, yfir tryggingafræðilega stöðu beggja deilda lífeyrissjóðsins.

Samþykktar voru tillögur stjórnar til breytinga á samþykktum sjóðsins en tillögu sjóðfélaga var vísað frá til frekari umjöllunar hjá stjórn.

Hér má skoða glærur sem farið var yfir á fundinum

Til baka í fréttir