30.05.2024

Niðurstöður ársfundar 2024

Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Hótel Reykjavík Grand þann 29. maí síðastliðinn  og hófst hann kl. 17:00. Fundarstjóri var kjörinn Hinrik Greipsson og ritari fundarins var Pálmi Rögnvaldsson.

Tilkynnt var um niðurstöðu rafrænna kosninga til stjórnar sem fram fór 22. maí - 28. maí 2024 þar sem eftirtaldir einstaklingur hlutu kjör til aðalstjórnar:

Þá voru eftirtaldir einstaklingar sjálfkjörnir í varastjórn:

Ari Skúlason, formaður stjórnar, flutti skýrslu stjórnar og fór yfir helstu þætti í starfsemi sjóðsins á síðasta ári.  Þá kynnti Tryggvi Tryggvason, framkvæmdastjóri sjóðsins, ársreikning 2023 og fjárfestingarstefnur beggja deilda. Þá fór tryggingafræðingur sjóðsins, Bjarni Guðmundsson, yfir tryggingafræðilega stöðu beggja deilda lífeyrissjóðsins.

Samþykktar voru tillögur stjórnar til breytinga á samþykktum sjóðsins. Tillögurnar verða sendar til afgreiðslu hjá aðildarfyrirtækjum sjóðsins í samræmi við 7. gr. samþykkta.  Að fenginni staðfestingu aðildarfyrirtækja fara nýjar samþykktir til fjármála- og efnahagsráðuneytis til staðfestingar.

Skoðunarmenn sjóðsins voru kjörin þau Guðrún Antonsdóttir og Þorsteinn Þorsteinsson.

Hér má skoða þær glærur sem farið var yfir á fundinum en hann var jafnframt sendur út í beinu vefstreymi.

Fundargerð fundarins verður aðgengileg á vefsíðunni innan skamms.

Til baka í fréttir