25.11.2015

Veðhlutfall sjóðfélagalána hækkað í 75%

Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna hefur ákveðið að breyta útlánareglum sjóðfélagalána þannig að hámarks veðhlutfall er hækkað í 75% af kaupverði eða matsverði íbúðarhúsnæðis. Þá er hámarks lánsréttur hækkaður í 35.000.000 og nær nú til allra þeirra sem eiga réttindi hjá sjóðnum. Verðtryggðir vextir eru áfram 3,5%, breytilegir skv. ákvörðun stjórnar, lántökugjald 0,5% og lánstími 5 til 40 ár. Nánari upplýsingar um útlánareglur og kjör má finna á vef sjóðsins undir lífeyrissjóðslán.

Til baka í fréttir