Niðurstaða athugunar á lánveitingum Lífeyrissjóðs bankamanna til einstaklinga
16.09.2014
Fjármálaeftirlitið hefur framkvæmt athugun á lánveitingum Lífeyrissjóðs bankamanna til einstaklinga. Athugunin var framkvæmd á öðrum ársfjórðungi 2014. Að mati Fjármálaeftirlitsins eru lánveitingar lífeyrissjóðsins í samræmi við gildandi lög, fjárfestingarheimildir og lánareglur Lífeyrissjóðs bankamanna.
Sjá nánar á vef FME, slóð:
http://www.fme.is/utgefid-efni/frettir-og-tilkynningar/gagnsaeistilkynningar/nr/2133
Raunhæf dæmi um áhrif réttindabreytingar í Hlutfallsdeild
13.05.2014
Seðlabanki Íslands bauð starfsmönnum sínum sem nú greiða iðgjöld til Hlutfallsdeildar sem og lífeyrisþegum til kynningar á áhrifum fyrirhugaðrar réttindabreytingar. Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bankamanna flutti þar erindi og fór yfir glærur sem ættu að gagnast öllum sjóðsfélögum og lífeyrisþegum Hlutfallsdeildar til skilnings.
Ársfundur 2014
28.03.2014
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Icelandair Hótel Reykjavík Natura 26. mars 2014.
Uppgjör og ávöxtun ársins 2013
20.03.2014
Uppgjöri sjóðsins fyrir árið 2013 er lokið. Raunávöxtun Hlutfallsdeildar á árinu var 4,45% og Aldursdeildar 5,19%.
Tillögur til breytinga á samþykktum 2014
24.02.2014
Fyrirliggjandi eru tillögur stjórnar Lífeyrissjóðs bankamanna til breytinga á samþykktum sjóðsins, sem lagðar verða fram á ársfundi sjóðsins þann 26. mars 2014.
Lífeyrisgátt, Gott að vita og opið hús
30.10.2013
Opnaður hefur verið aðgangur að Lífeyrisgáttinni. Fræðusluvefurinn Gott að vita hefur verið uppfærður og opið hús verður fyrir sjóðsfélaga Lífeyrissjóðs bankamanna í húsakynnum okkar að Skipholti 50 b, þann 5. nóvember milli kl. 15 og 18.
Framkvæmdastjóraskipti
23.10.2013
Framkvæmdastjóri sjóðsins, Sigtryggur Jónsson, mun láta af störfum í lok árs. Nýr framkvæmdastjóri hefur verið skipaður, Ólafur Kr. Valdimarsson.
Ársfundur 2013
25.03.2013
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Hótel Natura þriðjudaginn 19. mars 2013
Uppgjör og ávöxtun ársins 2012
18.03.2013
Uppgjöri sjóðsins fyrir árið 2012 er lokið. Raunávöxtun Hlutfallsdeildar á árinu var 5,06% og Aldursdeildar 5,57%.
Vextir af lánum til sjóðfélaga lækka í 3,5%
01.02.2013
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna hefur ákveðið að lækka vexti á lánum til sjóðfélaga úr 4,00% í 3,5%.
Breytingin tekur gildi frá og með 1. febrúar 2013.
Í tilefni af gagnsæistilkynningu Fjármálaeftirlitsins
11.12.2012
Í tilefni af gagnsæistilkynningu Fjármálaeftirlitsins vegna athugunar á stöðu fjárfestinga hinn 31. desember 2011 og ferli fjárfestingarákvarðana Lífeyrissjóðs bankamanna frá 1. janúar 2007 til 31. desember 2011, vill stjórn sjóðsins koma eftirfarandi á framfæri:
13. mánuður
03.12.2012
Ekki er lengur um sérstaka greiðslu vegna 13. mánaðar að ræða hjá þeim hluta lífeyrisþega sem áður hafði þann rétt, þar sem frá upphafi ársins 2012 hefur honum verið jafnað niður á mánuði ársins.