Lífeyrissjóður bankamanna leggur fram matsbeiðni vegna Hlutfallsdeildar
19.09.2016
Mikil óánægja hefur verið meðal sjóðfélaga Hlutfallsdeildar Lífeyrissjóðs bankamanna um nokkurt skeið vegna forsendubrests á samkomulagi um breytingar á reglugerð sjóðsins sem tók gildi 1. janúar 1998. Samkomulagið var gert í tengslum við breytingu á rekstrarformi Landsbanka Íslands úr ríkisviðskiptabanka í hlutafélagabanka og fól í sér að ákvæði um ábyrgð aðildarfyrirtækja á skuldbindingum var fellt niður og hún gerð upp miðað við tilteknar tryggingafræðilegar forsendur. Var sjóðnum skipt upp og stofnuð svokölluð Hlutfallsdeild fyrir þá starfsmenn sem hófu störf fyrir 1. janúar 1998 og þá sjóðfélaga sem hættir voru störfum við breytinguna. Sjóðfélagar Hlutfallsdeildar telja að grundvöllur samkomulagsins hafi raskast verulega til tjóns fyrir lífeyrissjóðinn og sjóðfélaga. Voru réttindi sjóðfélaga í Hlutfallsdeild m.a. skert um 9,65% árið 2014, en eftir sem áður er tryggingafræðileg staða deildarinnar m.v. úttekt 2015 neikvæð um 2,6%.
Á síðasta ári námu lífeyrisgreiðslur Hlutfallsdeildar samtals 2.190 milljónum króna til alls 946 lífeyrisþega.
Niðurstöður ársfundar 2016
06.04.2016
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Icelandair Hotel Reykjavík Natura þann 6. apríl slíðastliðinn og hófst hann kl. 17.
Ávöxtun og afkoma 2015
17.03.2016
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2015.
Ársfundur 2016
25.02.2016
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn miðvikudaginn 6. apríl næstkomandi kl. 17.00. Fundurinn verður haldinn á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, Þingsal 2-3.
Veðhlutfall sjóðfélagalána hækkað í 75%
25.11.2015
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna hefur ákveðið að breyta útlánareglum sjóðfélagalána þannig að hámarks veðhlutfall er hækkað í 75% af kaupverði eða matsverði íbúðarhúsnæðis. Þá er hámarks lánsréttur hækkaður í 35.000.000 og nær nú til allra þeirra sem eiga réttindi hjá sjóðnum.
Sjóðfélagafundur Hlutfallsdeildar
21.09.2015
Sjóðfélagafundur Hlutfallsdeildar Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn miðvikudaginn 7. október nk. kl. 17:00 á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, þingsal 2.
Framkvæmdastjóraskipti
25.08.2015
Nýr framkvæmdastjóri, Tryggvi Tryggvason, hefur verið skipaður hjá Lífeyrissjóði bankamanna og mun hann hefja störf í september 2015.
Ársfundur 2015
26.03.2015
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Icelandair Hótel Reykjavík Natura 25. mars 2015.
Uppgjör og ávöxtun ársins 2014
17.03.2015
Uppgjöri sjóðsins fyrir árið 2014 er lokið. Raunávöxtun Hlutfallsdeildar á árinu var 4,42% og Aldursdeildar 5,06%.
3. tbl. Vefflugunnar er komið út
19.12.2014
Í ritinu Vefflugan er að finna margvíslegan fróðleik um lífeyrismál. Út er komið 3. tbl. Sjá nánar á vef Vefflugunnar: vefflugan.is
Réttindabreyting í Hlutfallsdeild
10.12.2014
Fjármálaráðuneytið hefur nú með bréfi til Lífeyrissjóðs bankamanna, dags. 28. nóvember 2014, staðfest breytingar á samþykktum sjóðsins. Réttindabreyting Hlutfallsdeildar kemur nú til framkvæmda og hefur áhrif á lífeyrisgreiðslur frá og með janúar 2015.
2. tbl. Vefflugunnar er komið út
14.10.2014
Í ritinu Vefflugan má finna margvíslegan fróðleik um lífeyrismál. Út er komið 2. tölublað. Sjá nánar á vef Vefflugunnar: http://vefflugan.is/